Verk úr seríunni Vefur
Kauptu alla seríuna fyrir 35.000kr (5 verk) með því að setja öll verkin í körfuna og nota afsláttarkóðann: VEFUR
Vefur
Vefur
Samfélag af frumum sömu tegundar sem gegna sama hlutverki.
Í verkinu mætir okkur lítið samfélag kvenna, sem koma úr ólíkum áttum en mynda hér saman eina heild. Í verkinu liggur leit okkar að augnabliks skilningi, einhvers konar samþykki. Von um tengingu án fordóma. Eitt augnablik myndast vefur utan samfélags, innan annars. Augnablikin óræð en fara þó ekki á milli mála. Andartak sem ekki verður auðveldlega lýst, heldur einungis fundið fyrir. Í verkinu má finna vísbendingu um traust og mannlega tengingu, einlægni og styrk. Einfalt og flókið á sama tíma, varkárni í öruggu afli.
Módel: Julia Zakharzhuk, Helga Lind Mar, Ása Kristín Einarsdóttir, Anna Margrét Kristjánsdóttir og Unnur Elísabet Gunnarsdóttir.
Verkið er hluti af sýningunni "Ég býð mig fram - Sería II" - sem sýnd var í Tjarnarbíó 2019. Sýningin hlaut aðal verðlaun Rvk fringe festival sama ár.
Prentað á hágæða Munken Polar 240gr. pappír í svansvottaðri prentsmiðju