Landvættirnar eru skapaðar fyrir greinina Brotnar greinar, eftir Söru Mansour.
„Ég vildi óska að ég gæti hafið þessa grein með þeim orðum að yfirvofandi breyting á útlendingalögum hafi eflaust ekki farið fram hjá neinum. En sannleikurinn er sá að lagabreytingin hefur farið fram hjá mörgu okkar Íslendinga. Hún hefur fallið í skugga meira aðkallandi málefna á borð við smithættu, atvinnuleysi, forsetakosningar og lögregluofbeldi. Hún er margþætt, og misskiljanleg, en mig langar að segja lesendum frá breytingu sem lítið hefur verið fjallað um í fjölmiðlum og varðar fjölskyldusameiningu flóttafólks."
Ef allar 4 landvættirnar eru keyptar saman fást þær ódýrari, hægt er að kaupa þær hér.
Helmingur verðs á þessu verki rennur til Solaris - Hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á íslandi.
Prentuð á hágæða Munken Polar 240gr. pappír.
Sjá öll verk eftir Alex Steinþórsdóttur