Listafólkið okkar: Sólrún Ylfa
Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir (eða Sóla) er fiðluleikari, myndskreytir og hreyfimyndasmiður. Hún útskrifaðist árið 2015 úr Menntaskólanum við Hamrahlíð af opinni braut með áherslu á heimspeki og myndlist. Sólrún er nú búsett í Kaupmannahöfn þar sem hún stundar fiðlunám við Konunglega danska tónlistarháskólann.
Haustið 2020 kom út bókin Hvíti björninn og litli maurinn með myndskreytingum hennar, auk þess sem myndir hennar prýða Jóladagatal Borgarbókasafnsins 2020. Undanfarin ár hefur Sólrún einnig lagt stund á hreyfimyndagerð og -kennslu, en meðal verka hennar þar eru Marglita marglyttan (2018) og Eldhús eftir máli (2020) sem var frumsýnd á RIFF í september síðastliðnum.