Sjávarréttaplatti – Uppskera
Sjávarréttarplatti eftir Hilgunni Sigvaldadóttur - Uppskera Listamarkaður
Sjávarréttaplatti
  • Hlaða mynd inn í gallerí Sjávarréttarplatti eftir Hilgunni Sigvaldadóttur - Uppskera Listamarkaður
  • Hlaða mynd inn í gallerí Sjávarréttaplatti

Sjávarréttaplatti

Listamanneskja
Hildigunnur Sigvalda
Upprunalegt verð
8.000 kr
Verð
8.000 kr
Upprunalegt verð
Uppselt
Verð
per 
Vsk. er innifalinn í verði

„Ég hef alltaf fundið fegurð í hversdagsleikanum og teikna oftast viðfangsefni sem eru úr mínu nærumhverfi. Ég fæ einhverja löngun í að festa það sem mér finnst fallegt niður á pappír. Það getur verið kaffibollinn með morgunmatnum eða bleikt sólarlag sem kveikir áhugan. Kyrralífsmyndir hafa lengi verið iðkaðar í listasögunni en þær hafa misst listrænt gildi sitt að vissu leyti í nútímanum. Viðfangsefnin þykja kannski frekar kvennleg sem að er oft litið niður á. Ég held samt að það sé mikilvægt að kunna að meta hlutina í kringum sig og mig langar til að hvetja fólk til að staldra við, hægja á, neyta minna en læra að finna fegurðina í því sem maður á.“ - Hildigunnur Sigvalda

Vatnslitir og gouache

Prentuð á hágæða Munken Polar 240gr. pappír hjá Svansvottaðri prentsmiðju.

SJÁ ÖLL VERK EFTIR HILDIGUNNI